Nýlega efndi Sturla Böðvarsson til fundar í Þjóðmenningarhúsinu með forstöðumönnum stofnana ráðuneytisins, formanna ráða á þess vegum auk forstjóra Íslandspósts.
|
Fundarmenn í Þjóðmenningarhúsinu |
Er þetta í annað sinn sem Sturla ákveður að hafa þennan háttinn á, við að leiða saman forsvarsmenn í málaflokkum ráðuneytisins. Þessi árlegi fundur er notaður til þess að kynna það sem er framundan og það sem hæst fer hverju sinni.
Að þessu sinni var drögum að samgönguáætlun fyrir árin 2005-2008 gerð skil, og einnig var farið yfir drög að fjarskiptaáætlun og ferðamálaáætlun. Auk þess fór fram kynning á drögum að lögum um skipan ferðamála og kynning á verkefninu „Minnkum skriffinnskuna“.
Þeir áhugasömu geta nálgast glærukynningar frá fundinum hér fyrir neðan:
 |
Glatt á hjalla í Þjóðmennigarhúsinu
|
|
 |
Elín Rósa Finnbogadóttir og Kristján Vigfússon |
|
 |
Jón Árelíusson |
|
|
Sigurbergur Björnsson og Sigríður Finsen
|
|