Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi hafa að undanförnu haldið fundi í kjördæminu undir yfirskriftinni „Verk að vinna“.

Sturla Böðvarsson ásamt Helgu Halldórsdóttur héldu fund í fundarröðinni í Narfeyrarstofu í Stykkishólmi miðvikudaginn 16. apríl sl. Fundurinn var í alla staði frábær. Fundarmenn voru um 30 og voru afar líflegar umræður eftir framsöguerindi Sturlu og Helgu um hin margvíslegustu mál samfélagsins.

Atvinnumál voru mönnum ofarlega í huga og kröfðust heimamenn þess að Sturla myndi sjá um þau mál í næstu ríkisstjórn. Enda þyrfti öflugan mann til sem hefði þor til að taka til hendinni. Ýmsir fundarmenn voru hræddir um árangur í kosningunum í vor en það var sammdóma álit að Sjálfstæðisflokkurinn yrði að leiða næstu ríkisstjórn til að stýra og stjórna því góðæristímabili sem í hönd fer, þannig að hagsbótin nýtist öllum landsmönnum sem best.