Umferðaröryggisaðgerð um leiðbeinandi hraðamerkingar hefst í næstu viku þegar fyrsta leiðbeinandi hraðaskiltið verður sett upp.
Fyrir tæplega ári síðan kynnti samgönguráðherra aðgerðaáætlun í umferðaröryggismálum undir yfirskriftinni ,,Breytum þessu“ og á síðastliðnu vorþingi var umferðaröryggisáætlun samþykkt, sem hluti af samgönguáætlun, á Alþingi.
Í vikunni kemur til framkvæmda ein þeirra aðgerða sem samgönguráðherra hefur boðað, þegar fyrsta leiðbeinandi hraðaskiltið verður afhjúpað.
Í framhaldinu mun Vegagerðin annast uppsetningu skilta með leiðbeinandi upplýsingum um ökuhraða á tiltekna staði á stofnvegum og helstu tengivegum. Leiðbeinandi hraði er miðaður við akstursskilyrði á auðum blautum vegi eins og gert er ráð fyrir í forsendum hönnunarhraða á vegstöðlum og er því verið að upplýsa vegfarendur um öruggan hraða við þær aðstæður.
Tilgangur með leiðbeinandi hraðamerkingum á þjóðvegum er að fækka dauðaslysum og alvarlega slösuðumi í umferðinni. Við vinnslu umferðaröryggisáætlunar var val á aðgerðum til aukins umferðaröryggis byggt á áætlaðir arðsemi einstakra aðgerða. Á tímabilinu 2005-2008 verður 1.540 milljónum króna varið til eftirfarandi verkefna, en vonir standa til um ávinningur aðgerðanna verði fækkun dauðaslysa um að jafnaði 4,2 á ári og fækkun alvarlegra slasaðra um að jafnaði 14,5 á ári.
Umferðaröryggisaðgerðir: | Fækkun látinna á ári | Fækkun alvarlegra slasaðra á ári | Fjármögnun 2005-2008 |
Hraðakstur og bílbeltanotkun | 2,5 | 4,8 | 687 |
Leiðbeinandi hraðamerkingar | 0,3 | 0,9 | 17 |
Eyðing svartbletta | 0,5 | 2,3 | 312 |
Ölvun/fíkniefni við akstur | 0,5 | 2,7 | 228 |
Umferðaröryggi í öryggisstjórnun fyrirtækja | 0,1 | 0,6 | 15 |
Umferðaröryggi í námsskrá grunnskóla | 0,2 | 1,0 | 62 |
Öryggisbeltanotkun í hópbifreiðum | 0,0 | 0,3 | 16 |
Forvarnir erlendra ökumanna | 0,2 | 1,2 | 47 |
Slysum og óhöppum v. lausagöngu búfjár fækkað með girðingum | 0,1 | 0,7 | 156 |
Samtals | 4,2 | 14,5 | 1.540 m.kr |
Umferðarstofa mun halda utan um framkvæmd umferðaröryggisáætlunar og hefur ráðuneytið falið stofnuninni að birta árlega skýrslu um stöðu mála og ávinning aðgerða.