Síðan mín endurnýjuð
Það varð mikil bylting á samskiptasviðinu þegar ég opnaði sérstaka heimasíðu www.sturla.is árið 1999. Með því að skrifa á síðuna náði ég að koma á framfæri þeim verkefnum sem ég vann að bæði sem…
Hótel Egilsens í Stykkishólmi
Skrifað fyrir eigendur Hótel Egilsens í Stykkishólmi í tilefni þess að hótelið var opnað.
Eins og fram kemur í Sögu Stykkishólms eftir sagnfræðingana Ólaf Ásgeirsson og Ásgeir Ásgeirsson sem kom út árið 1997 má rekja byggð og búsetu í Stykkishólmi til þess tíma er kaupmenn settust þar fyrst að árið 1596 og hófu verslunarrekstur. Þangað bárust menningaráhrif frá dönskum, þýskum og hollenskum kaupmönnum. Í upphafi byggðarinnar var það verslunin sem var aðal atvinnuvegur þeirra sem settust að í Stykkishólmi. Með vaxandi verslun og tengslum við hana hófst þilskipaútvegur frá Stykkishólmi og skaut þannig fleiri og sterkum stoðum undir þróun byggðarinnar sem var samt sem áður mjög tengd sveitunum á Snæfellsnesi, byggðinni við Breiðafjörð og eyjabúskapnum sem var sú gullkista sem skapaði auðlegðina í héraðinu.
Unnið er að breytingum á síðunni
Vegna breytinga á vefsíðunni, mun framsetning veftrés raskast aðeins að sinni.
Leiðtoginn og Kolbrún Bergþórsdóttir
Fátt er mikilvægara lýðræðinu en traustir og trúverðugir fjölmiðlar. Fyrst eftir hrunið óttaðist ég það hvern dag að blöðin Morgunblaðið, sem ég borga fyrir, og Fréttablaðið, sem ég fæ án þess að greiða beint fyrir, hættu að berast inn um bréfalúguna.