Á morgun, miðvikudag, verður Sturla Böðvarsson staddur á Hótel Ísafirði að kynna Fjarskiptaáætlun 2005-2010.
Allir eru velkomnir á fundinn sem hefst klukkan 20:00.
Með ráðherra í för er Hrafnkell V. Gíslason forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar og Bergþór Ólason aðstoðarmaður ráðherra.