Fyrir stundu opnaði Sturla Böðvarsson göng undir Almannaskarð.
 
Göngin munu auka umferðaröryggi til muna þar sem þau leysa af hólmi brattasta vegarhluta hringvegarins, en vegurinn er með 17% halla. Vegna þessa mikla halla er vegurinn töluvert hættulegur og má segja að hann hafi verið farartálmi vegna grjóthruns árið um kring, auk þess sem leiðin hefur oft verið erfið að vetri til vegna hálku og snjóa.
 
Heildarlengd ganga í bergi er 1.146 metrar en með vegskálunum verður heildarlengd um 1.308 metrar og nema heildarfjárveitingar til verksins um 1.100 m.kr.

Ávarp ráðherra við opnun ganganna er eftirfarandi.

Ráðherrar, vegamálastjóri, fulltrúar verktaka, alþingismenn, heimamenn og gestir.

Í nafni samgönguráðuneytisins fagna ég verklokum hér við Almannaskarð.

Gott verk hefur verið unnið sem hefur mikla þýðingu fyrir íslenska samfélagið. Hver einasti hluti vegakerfisins sem endurbyggður er þjónar okkur Íslendingum öllum.

Þess skulum við minnast. Við eigum og verðum að muna að við erum ein þjóð sem byggir þetta land. Við verðum að minnast þess að við eigum allt undir því að samtakamáttur okkar verði það að afl sem tryggir sjálfstæði okkar og varðveiti menningu okkar. Mikilvægur hluti þeirrar viðleitni er að tryggja samgöngur með öruggu vegakerfi.

Um leið og ég lýsi jarðgöngin hér í Almannaskarði formlega opnuð vil ég leyfa mér að þakka almættinu fyrir að hafa haldið sinni verndarhendi yfir þessu verki og tryggt slysalausa framvindu þessa mikilvæga mannvirkis sem við tökum í notkun á þessum fallega degi.

Ég lýsi jarðgöngin í Almannaskarði opin fyrir umferð. Megi gæfan fylgja öllum vegfarendum og megi góðir vættir vaka yfir byggðum þessa héraðs.