Samgönguráðherra tilkynnti á ársfundi Iceland Naturally sem haldinn var í dag í Washington DC, þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að gera nýjan samning um kynningu á Íslandi vestanhafs undir merkjum Iceland Naturally.

Núverandi samningur er á milli samgönguráðuneytisins og átta íslenskra fyrirtækja sem selja vörur og þjónustu vestanhafs. Samningurinn var til fimm ára og rennur út í lok þessa árs. Á samningstímanum hefur 5 milljónum dollara verið varið til umfangsmikilla kynninga á Íslandi, en þessir fjármunir koma frá þeim fyrirtækjum sem að verkefninu koma og íslenska ríkinu. Kynningin hefur beinst að ákveðnum hópum sem rannsóknir hafa sýnt að hafi áhuga á að vita meira um Ísland, kaupa íslenskar vörur eða ferðast til landsins.

Gert er ráð fyrir að nýr samningur um Iceland Naturally verkefnið verði til fjögurra ára og taki gildi 1. jan. nk.









Í fremri röð frá vinstri er Hannes Heimisson, þá Pétur Ómar Ágústsson og Pétur Óskarsson. Í aftari röð frá vinstri er Einar Gústavsson, þá Sturla Böðvarsson og Thomas Möller.