Gamla sjúkrahúsið á Ísafirði hefur fengið nýtt hlutverk en á þjóðhátíðardaginn var opnað nýtt safnahús Ísfirðinga sem ber heitið Safnahúsið Eyratúni. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra opnaði húsið formlega að viðstöddu fjölmenni.
Í húsinu er bókasafn, héraðsskjalasafn, ljósmyndasafn og listasafn. Einnig eru þar tvær minningarstofur, Vilmundarstofa til minningar um Vilmund Jónsson fyrrv. landlækni og Haglínsstofa til minningar um Guðmund Gíslason Hagalín rithöfund. Í sumar verður Kristján Magnússon listmálari með sýningu á verkum sínum í listasafni safnhússins.


HS/bb.is

Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Inga S. Ólafsdóttir, formaður menningarnefndar Ísafjarðarbæjar og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra við opnun safnahússins.