Bjarni Djurholm samgöngu-ráðherra Færeyja, sem staddur er á Íslandi, heimsótti í dag Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra. Áttu þeir fund í samgöngu-ráðuneytinu ásamt nokkrum samstarfsmönnum sínum.

Á fundi ráðherranna greindu Færeyingar frá undirbúningi lagningar nýs sæstrengs milli Færeyja og Skotlands sem ráðgert er að taka í gagnið seint á þessu ári. Einnig ræddu þeir ýmis málefni er tengjast samstarfi og sameiginlegum málefnum landanna á sviði samgöngu-, ferða- og fjarskiptamála en nýlega undirrituðu ráðherrarnir ásamt Grænlendingnum Siverth Heilmann nýjan samstarfssamning landanna á sviði ferðamála.