Fyrr í dag kynnti Sturla Böðvarsson sér starfsemina sem fram fer frá því að póstur berst frá Póstmiðstöðinni á Stórhöfða til dreifingarmiðstöðvarinnar í Dalshrauni í Hafnarfirði.










Ingimundur Sigurpálsson forstjóri Íslandspósts, Helga Magnúsdóttir fulltrúi, Sigurjón Baldursson forstöðumaður dreifingarstöðva og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra.

Með ráðherra í för voru Halldór S. Kristjánsson skrifstofustjóri, Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri og Bergþór Ólason aðstoðarmaður ráðherra.
Á móti þeim tóku Ingimundur Sigurpálsson forstjóri Íslandspóst, Andrés Magnússon starfsmannastjóri, Tryggvi Þorsteinsson framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs, Sigurjón Baldursson forstöðumaður dreifingarstöðva og Freydísi H. Jónsdóttur dreifingarstjóra í Dalshrauni.
Kynntu þau sér starfsemina sem fram fer frá því að póstur berst frá Póstmiðstöðinni á Stórhöfða 32 til dreifingarstöðvarinnar og hvernig hann er flokkaður af bréfberum í hverfi áður en þeir bera hann út.  Hjá dreifingarmiðstöðinni í Dalshrauni eru 62 starfsmenn sem sjá um að koma pósti til 10.400 heimila og 800 fyrirtækja á Álftanesi, í Hafnarfirði og í Garðabæ.