Samgönguþing er öllum opið og er aðgangur ókeypis. Þingið hefst klukkan 13:00 með ávarpi Sturlu Böðvarssonar á Hótel Selfossi.
Nú er unnið að undirbúningi að gerð samgönguáætlunar 2007-2018 og er samgönguþingið haldið til þess að kynna stöðu vinnunnar við áætlunina og fá fram sjónarmið og viðbrögð hagsmunaaðila og notenda.
Á samgönguþingi verður gerð grein fyrir drögum að helstu forsendum og markmiðum samgönguáætlunar, þá verða fyrirlesarar úr hópi fræðimanna og notenda.
Áhugasamir geta nálgast vinnuskjal með fyrstu blaðsíðum samgönguáætlunar 2007-2018 hér (WORD-93KB)
Dagskráin er eftirfarandi:
13:00 Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra – Ávarp
13:10 Ingimundur Sigurpálsson, formaður samgönguráðs – Vinna við gerð samgönguáætlunar
13:30 Hartmut H. Topp, Prof. Dr. Ing. Technische Universität Kaiserslautern – Mobility and Transport – seen from the year 2030
14:00 Þorgeir Pálsson, flugmálastjóri – Stefnumörkun í flugmálum til 2018
14:20 Hermann Guðjónsson, siglingamálastjóri – Stefnumörkun í siglingamálum til 2018
14:40 Jón Rögnvaldsson, vegamálastjóri – Stefnumörkun í vegamálum til 2018
15:00 Fundarhlé
15:20 Hreinn Haraldsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar – Áætlanir um breytta gjaldtöku af umferð
15:40 Bjarni Reynarsson, ráðgjafi hjá Landráði – Umfjöllun um ferðatíma
15:55 Axel Hall, hagfræðingur hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands – Aðferðir við forgangsröðun framkvæmda
16:10 Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins – Samgöngustefna 2007 – 2018 frá sjónarhóli atvinnuveganna
16:20 Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar – Samgöngustefna 2007 – 2018 frá sjónarhóli sveitarfélags á landsbyggðinni
16:30 Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi – Samgöngustefna 2007 – 2018 frá sjónarhóli sveitarfélags á höfuðborgarsvæðinu
16:45 Almennar umræður
Þingslit áætluð um klukkan 17:30
Fundarstjóri verður Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri í samgönguráðuneytinu.