Í tilefni af opnun Fáskrúðsfjarðarganga flutti samgönguráðherra eftirfarandi ræðu.
IK
Forsætisráðherra, vegamálastjóri, fulltrúar verktaka, alþingismenn, heimamenn og gestir.
Í nafni samgönguráðuneytisins fagna ég verklokum hér við Reyðafjörð.
Gott verk hefur verið unnið sem hefur mikla þýðingu fyrir íslenska samfélagið. Hver einasti hluti vegakerfisins sem er endurbyggður er í þágu allra Íslendinga.
Þess skulum við minnast við verklok hér við Reyðafjörð þar sem í dag drýpur smjör af hverju strái eins og sagt var um gósen lönd úr fortíðinni.
Við eigum og verðum að muna að við erum ein þjóð sem byggir þetta land. Við verðum að minnast þess einnig að við eigum allt undir því að samtakamáttur okkar verði það að afl sem tryggir sjálfstæði okkar og varðveiti menningu okkar. Mikilvægur hluti þeirrar viðleitni er að tryggja samgöngur með öruggu vegakerfi.
Um leið og ég lýsi jarðgöngin á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar formlega opnuð vil ég leyfa mér að þakka almættinu fyrir að hafa haldið sinni verndarhendi yfir starfsmönnum við verkið og tryggt framvindu þessa mikilvæga mannvirkis sem við tökum í notkun á þessum fallega degi.
Ég lýsi jarðgöngin milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar opin fyrir umferð. Megi gæfan fylgja öllum vegfarendum sem fara um þetta glæsilega mannvirki og megi góðir vættir vaka yfir byggðum austurlands.