Samgönguráðherra kominn heim
Ráðherra flaug heim í gærkvöld frá London.
Ráðherra flaug heim í gærkvöld frá London.
Nú er lokið ráðstefnu samgönguráðherra sem haldinn var í Prag, og er ráðherra á leið til London og þaðan áfram til Hull. Þar hyggst ráðherra heimsækja margmiðlunar- og símafyrirtækið Kingston Communications, en það fyrirtæki hefur náð miklum árangri í rekstri stafræns sjónvarps.
Samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, er nú staddur í Prag í Tékklandi, en þar verður haldinn, dagana 30. og 31. maí, árleg Evrópuráðstefna samgönguráðherra. Ráðstefna þessi er haldin á vegum OECD í samstarfi við ESB. 39 ríki eru fullgildir aðilar að ráðstefnunni, en að auki eru átta ríki með áheyrnarfulltrúa. Ísland hefur verið fullgildur aðili að ráðstefnunni síðan 1998. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á vef OECD, www.ocde.org
Samgönguráðherra er nú staddur á Englandi á leið sinni til Tékklands, en á mánudag verður settur í Prag fundur evrópskra samgönguráðherra. Nánar verður greint frá fundinum hér á síðunni eftir helgi.
Eins og skýrt hefur verið frá í fjölmiðlum afgreiddi Alþingi rétt fyrir frestun þingfunda vegáætlun 2000-2004. Verið er að vinna gögn vegna þessa fyrir vefinn og verða þau sett hér inn von bráðar. Sjá nánar: yfirlit um aukin framlög til vegaáætlunar.