Nýjustu færslur
Fyrsta flug ICELAND EXPRESS til Kaupmannahafnar, 27. febrúar 2003
Ágætu gestir!
Í dag er enn einum áfanga náð í flugsögu og ferðaþjónustu okkar Íslendinga – og vil ég óska forsvarsmönnum ICELAND EXPRESS, og þjóðinni allri, innilega til hamingju með daginn!
Ráðherra skoðar framkvæmdir á Bröttubrekku
Samgönguráðherra ásamt starfsmönnum Vegagerðarinnar og sveitarstjórnarmönnum úr Dalabyggð, Saurbæ og frá Reykhólum, skoðuðu framkvæmdir á Bröttubrekku síðastliðinn mánudag.
Opnun tilboða í jarðgöng fyrir austan
Tilboð í gerð jarðganga milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar, ásamt tilheyrandi vegamannvirkjum, voru opnuð hjá Vegagerðinni í gær. Fjögur tilboð bárust og lægsta kom sameiginlega frá verktakafyrirtækjunum Ístaki og E. Pihl & Sön upp á 3.249 milljónir króna. Vegagerðin áætlaði verktakakostnað upp á 3.160 milljónir króna, því var lægsta tilboðið 89 milljónum króna hærra.
Skýrsla um áhrif Hvalfjarðarganga
Föstudaginn 14. febrúar síðastliðinn var undirritað samkomulag um gerð skýrslu um áhrif Hvalfjarðarganga á búsetuþróun og –skilyrði á Vesturlandi. Að verkefninu standa Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Samgönguráðuneytið, Viðskiptaháskólinn á Bifröst, Vegagerð ríkisins, Spölur og Byggðastofnun. Stefnt er að verklokum fyrir júnílok 2003.
Vegaframkvæmdir verða stórauknar á næstu 18 mánuðum
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að láta auka vegaframkvæmdir á næstu 18 mánuðum og flýta vinnu við þegar ákveðin verkefni til að stuðla að eflingu atvinnutækifæra fram til þess tíma er áhrifa af stóriðjuframkvæmdum fer að gæta til fulls. Jafnframt er samþykkt að hrinda í framkvæmd áætlun um menningarhús og auka fé til atvinnuþróunar.