Stuðningsmenn Sturlu gefa út bækling
Í tilefni af prófkjöri sem fram fer næstkomandi laugardag, hafa stuðningsmenn Sturlu gefið út bækling. Þar er greint er frá helstu verkum hans sem þingmanns og ráðherra.
Í tilefni af prófkjöri sem fram fer næstkomandi laugardag, hafa stuðningsmenn Sturlu gefið út bækling. Þar er greint er frá helstu verkum hans sem þingmanns og ráðherra.
Sturla hélt erindi á málstofu í Viðskiptaháskólanum á Bifröst fyrr í dag. Í erindi sínu fjallaði hann um tækifærin sem blasa við á sviði fjarskipta og ferðamála. Málstofan var mjög vel sótt af nemendum og starfsmönnum skólans, en u.þ.b. 130 manns sóttu fundinn.
Á fundi Norrænu ráðherranefndarinnar í Osló fyrir stuttu var fjallað um stefnumörkun norðurlandaþjóðanna á sviði upplýsingatækni, og þá helst um útbreiðslu breiðbands. Á fundinum gerði ég grein fyrir stöðu mála hér á landi og þeirri stefnu sem ég hef fylgt sem ráðherra fjarskiptamála, það er að tryggja örugg, ódýr og aðgengileg fjarskipti fyrir alla.
Samgönguráðherra hefur skipað nýtt Flugráð. Ráðið er skipað frá og með 5. nóvember 2002.
Samgönguráðherra hefur skipað sérstaka rannsóknarnefnd til að rannsaka frekar flugslysið í Skerjafirði 7. ágúst 2000. Nefndin er skipuð frá og með 5. nóvember 2002.