Nýjustu færslur

Sannleikanum verður hver sárreiðastur

Skrif mín hér á heimasíðunni um vinnubrögð Helga Laxdal urðu honum tilefni til nýrrar fjölmiðlaútrásar. Helgi Laxdal bregður ekki vana sínum í viðtali við blaðamann Fréttablaðsins sl. laugardag. Þar sannar hann það sem ég hef haldið fram, að málflutningur hans er ekki samboðinn formanni stéttarfélags og augljóst að sannleikanum verður hver sárreiðastur. 

Ómálefnaleg framganga Helga Laxdal

Helga Laxdal, formanni Vélstjórafélagsins, hefur verið trúað fyrir því mikilvæga trúnaðarstarfi á vettvangi siglingamála að sitja í Siglingaráði.  Siglingaráð er umsagnaraðili og ráðgefandi fyrir samgönguráðherra í málum er varða siglingamál og öryggismál sjófarenda. Að undanförnu hefur Helgi gengið harkalega fram gegn samgönguráðherra og ekki síður siglingamálastjóra með óvenjulega ótrúverðugum og ómálefnalegum hætti. 

Ferðaþjónustuaðilar á Akureyri og Húsavík sóttir heim

Nýlega fundaði ráðherra með ferðaþjónustuaðilum á Akureyri og Húsavík þar sem ýmis mál voru rædd. Á Akureyri var m.a. fjallað um nýja Markaðsskrifstofu Norðurlands, flug Air Greenland á milli Akureyrar og Kaupmannahafnar og málefni gististaða í bænum.

1 101 102 103 104 105 172