Fundur samgönguráðherra Norðurlandanna
Hinn 9. september s.l hittust samgönguráðherrar Norðurlandanna á sínum árlega fundi, að þessu sinni í Grythyttan í Svíþjóð.
Hinn 9. september s.l hittust samgönguráðherrar Norðurlandanna á sínum árlega fundi, að þessu sinni í Grythyttan í Svíþjóð.
Skrif mín hér á heimasíðunni um vinnubrögð Helga Laxdal urðu honum tilefni til nýrrar fjölmiðlaútrásar. Helgi Laxdal bregður ekki vana sínum í viðtali við blaðamann Fréttablaðsins sl. laugardag. Þar sannar hann það sem ég hef haldið fram, að málflutningur hans er ekki samboðinn formanni stéttarfélags og augljóst að sannleikanum verður hver sárreiðastur.
Samgönguráðherra verður í Þórshöfn dagana 15.-17. september, þar sem fram fer Vestnorræna ferðakaupstefnan Vestnorden.
Helga Laxdal, formanni Vélstjórafélagsins, hefur verið trúað fyrir því mikilvæga trúnaðarstarfi á vettvangi siglingamála að sitja í Siglingaráði. Siglingaráð er umsagnaraðili og ráðgefandi fyrir samgönguráðherra í málum er varða siglingamál og öryggismál sjófarenda. Að undanförnu hefur Helgi gengið harkalega fram gegn samgönguráðherra og ekki síður siglingamálastjóra með óvenjulega ótrúverðugum og ómálefnalegum hætti.
Nýlega fundaði ráðherra með ferðaþjónustuaðilum á Akureyri og Húsavík þar sem ýmis mál voru rædd. Á Akureyri var m.a. fjallað um nýja Markaðsskrifstofu Norðurlands, flug Air Greenland á milli Akureyrar og Kaupmannahafnar og málefni gististaða í bænum.