Nýjustu færslur
Alþingi kemur saman að nýju
Alþingi Íslendinga kemur saman að nýju í dag, eftir jólafrí. Þinghald verður með styttra móti á þessu vorþingi, þar sem kosningar verða 10. maí n.k. Samkvæmt áætlun þingsins lýkur þinghaldi 14. mars n.k.
Tvöföldun Reykjanesbrautar
Það er vissulega ástæða til þess að fagna því að framkvæmdir eru hafnar við tvöföldun Reykjanesbrautar. Tvöföldun brautarinnar eykur afkastagetu umferðarmannvirkjanna og það sem meira er hún mun auka umferðaröryggi. Líklega má telja að umferðin aukist, því með þessari breiðu braut mun höfuðborgarsvæðið ná allt til byggðanna á Reykjanesi, sem hýsa Keflavíkurflugvöll, stærsta samgöngumannvirki okkar.
Varðveisla póstminja og frímerkja
Fyrir atbeina samgönguráðherra var undirritað í dag samkomulag um varðveislu frímerkja og póstminja er tengjast frímerkjaútgáfu milli Íslandspósts og Þjóðskjalasafns. Samkomulagið byggir á vinnu starfshóps samgönguráðuneytisins, Íslandspósts, Þjóðskjalasafns og Ríkisendurskoðunar.
Ár fatlaðra í Evrópu 2003
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tók ákvörðun um það snemma árs 2000 að árið 2003 yrði ár fatlaðra í Evrópu. Hugmyndin mun hafa komið frá samtökum fatlaðra í Evrópu. Gert er ráð fyrir að árið verði nýtt til þess að vekja athygli á hagsmunamálum fatlaðra og vinna að réttindamálum þeirra og kynna framlag fatlaðra til samfélagsins. Á þetta vil ég minna hér á heimasíðunni um leið og ég vek athygli á viðurkenningu sem Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra á Vesturlandi fékk á degi fatlaðra 3.desember s.l.
Frumvörp samgönguráðherra á nýliðnu haustþingi
Fern lög voru samþykkt á nýafstöðnu haustþingi (128. löggjafarþing), en þau eru eftirfarandi: