Nýjustu færslur
Aðalfundur SAF
Í morgun ávarpaði ráðherra aðalfund SAF, samtaka ferðaþjónustunnar. Ávarp ráðherra fer hér á eftir. Í kvöld situr ráðherra kvöldverðarhóf SAF á Hótel Loftleiðum.
Mosfellsbær í kvöld
Ráðherra talar í kvöld á opnum fundi sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ um samgöngumál. Einnig verða á fundinum nokkrir þingmenn kjördæmisins og umdæmisstjóri vegagerðarinnar á Reykjanesi. Flutt verða framsöguerindi og svarað fyrirspurnum úr sal.
Úr dagbók ráðherra þessa vikuna
Ýmislegt má sjá í dagbókinni fyrir þessa viku. Helst ber að nefna fund í Mosfellsbæ í kvöld, ávarp á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar í fyrramálið, ávarp á vetrarráðstefnu Vegagerðarinnar á Egilsstöðum á miðvikudag, undirskrift samnings við Vesturfarasetrið síðar sama dag, og loks almennur fundur um samgöngumál á Patreksfirði á fimmtudag.
Ríkisstjórn, þingflokkur og vefsíða…
Á dagskrá ráðherra í dag er m.a. ríkisstjórnarfundur og þingflokksfundur. Síðdegis í dag mun ráðherra svo opna upplýsingavefinn What’s on in Reykjavik.
Fundir á Höfn og í Valhöll
Síðasta færsla hér á síðunni segir frá fundi á Höfn í Hornafirði. Sá fundur var mjög vel sóttur, en um 90 manns mættu á Hótel Höfn. Þá var í gær haldinn í Valhöll fundur á vegum borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna um samgöngumál í Reykjavík.